Regnbogalitir ehf.
Regnbogalitir var stofnað árið 2000 af Hrólfi Inga Skagfjörð löggiltum málarameistara sem hefur verið verktaki í byggingargeiranum síðan 1991. Starfsmenn okkar eru menntaðir og sérhæfðir málarar eða með mikla reynslu í öllu sem tengist málun.
Regnbogalitir búa yfir góðum tækjakosti og mikilli hæfni sem tryggir hraða en á sama tíma góða þjónustu til okkar viðskiptavina.
Af hverju að ráða meistara?
Við erum menntaðir fagmenn sem leiðbeinum við val á efni og samsetningu lita. Við höfum alla þá kunnáttu til að mæta þínum óskum og kröfum.
Fagkunnátta
Við gerum vel ígrundaðar kostnaðaráætlanir sem standast og einungis er notað efni sem höndlar íslenskar aðstæður.
Meiri ending
Við sjáum til þess að góð sprungu- og undirvinna sé í lagi og tryggir meiri endingu. Við vinnum snyrtilega og fagmannlega.
Þjónusta
Við höfum mikla reynslu í öllu sem viðkemur málun. Við leggjum mikinn metnað í okkar verk og viljum ávallt að viðskiptavinir séu sáttir.
Þjónusta
Við höfum mikla reynslu í öllu sem viðkemur málun og viðhaldi mannvirkja.
Innanhúsmálun / Sandspörtlun
Það skiptir ekki máli hvað þarf að mála innanhúss, Regnbogalitir eru með reynsluna í verkið.
Fá tilboð →Háþrýstiþvottur
Er húsið skítugt? Er kominn tími á þrif? Við sjáum um háþrýstiþvott á húsum.
Fá tilboð →Viðhaldsþjónusta
Við getum farið í hvers konar viðhaldsþjónustu á eignum. Sendu okkur fyrirspurn!
Fá tilboð →Vatns- og krotvörn
Við höfum mikla reynslu í að vatns- og krotverja mannvirki. Það er nauðsynlegt að vatnsverja steiningu og sjónsteypu á c.a. 4 til 5 ára fresti samkvæmt upplýsingum frá Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins.
Þegar búið er að vatnsverja og styrkja yfirborðið er kjörið að setja vörn gegn veggjakroti yfir þá fleti sem eru mögulega í hættu á að verða fyrir barðinu á þess háttar skemmdarverkum sem nánast vonlaust er að ná af án þess að krotvörn sé á fletinum.
Góður tækjakostur
Við höfum nýlega bætt við okkur körfubíl sem kemst upp í 28 metra hæð. Hægt er að leigja hann í hvers konar þjónustu, hvort sem það þarf að hreinsa rennur, þrífa glugga eða tengja rafmagn — bæði lítil og stór verk.
Einnig nýtum við bílinn í tilfallandi málningarverkefni hjá Regnbogalitum.
Hafa samband
Hafa samband
Hafðu samband við okkur til að fá verðtilboð að kostnaðarlausu. Verkskoðun á höfuðborgarsvæðinu.